Félagsþjónusta Norðurþings
Velkomin(n) á vefsíðu Félagsþjónustu Norðurþings
|
Við viljum minna á að á Félagsþjónustu Norðurþings er veitt félagsleg ráðgjöf. Markmið félagslegrar ráðgjafar er að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og að veita stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðgjafar á sviði fjármála, húsnæðismála og fjölskyldu-og uppeldismála. Markmiðið með félagslegri ráðgjöf er að hver einstaklingur geti notið sín sem best í samfélaginu og að hjálpa fólki til sjálfshjálpar.
|
Nýjustu fréttir
-
Ágúst í árs leyfi
Ágúst Óskarsson ráðgjafi verður í leyfi frá störfum hjá Félagsþjónustu Norðurþings í eitt ár frá 1. ágúst næstkomandi. Hann mun starfa starfa hjá VIRK endurhæfingu.
-
Nýr forstöðumaður Setursins
Alma Lilja Ævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður geðræktarmiðstöðvarinnar Setursins. Alma hefur stundað háskólanám í sálfræði og stundar nú nám í Nútímafræði við Háskólann á Akureyri.
Hún hefur víðtæka reynslu á sviðinu og hefur m.a. starfað í Setrinu, á þjálfunarheimilinu í Sólbrekku, auk þess sem hún hefur starfað sem liðveitandi og stuðningsfjölskylda.
Alma tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi. -
Breytingar hjá Félagsþjónustunni
Erla Alfreðsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra um málefni fatlaðra. Hún hefur leyst Sigríði Guðjónsdóttir af sem deildarstjóri um málefni fatlaðra undanfarna mánuði á meðan Sigríður var í námsleyfi en Sigríður hefur nú sagt upp störfum.





